Stika úthlutar ferðum til bílstjóra og lætur þig vita ef eitthvað vantar.

Fyrir rútufyrirtæki á Íslandi.

Boð, svör, staðfesting fyrir brottför og akstursskýrslur á einum stað: í síma bílstjórans og í vafra flotastjórnar.

Stika Floti í tölvu: listinn Þarf athygli með ósvöruðum boðum og ferðum sem vantar bílstjóra.
Stika í síma bílstjóra: Mínar ferðir með Klár-staðfestingu fyrir næstu ferð.
Kannastu við þetta?

Ferðin er í Excel, boðið í tölvupósti og svarið einhvers staðar.

Í dag

Re: Re: Ferðir á morgun Skjáskot_Excel_v3.png Fékkstu boðið? Ósvarað símtal (3) Er mætingin 7:30 eða 8? Ég setti þetta í dagatalið mitt
  • Bílstjórar afrita ferðir í eigið dagatal.
  • Engin skrá er til yfir hver samþykkti hvaða ferð og hvenær.
  • Enginn veit fyrir brottför hvort bílstjórinn er lagður af stað.
  • Breyting á ferð berst ekki alltaf til bílstjórans.
  • Akstursskýrslur eru á pappír og slegnar inn aftur til að stemma af laun.

Með Stika

Mæting07:30
Ferð 1046Samþykkt

Snæfellsnes

þri. 20.10. · 08:00–18:00 · Harpa, rútustæði

Ein röð. Bílstjórinn og flotastjórnin sjá það sama.

Svona virkar það

Ein ferð fer alla leið í gegnum eitt kerfi.

  1. FerðFlotastjórnin stofnar ferðina í vafra.
  2. BoðBílstjórar fá boð í appið.
  3. SamþykktBílstjórinn svarar Já eða Nei með einum smelli.
  4. KlárFyrir mætingu staðfestir hann að hann sé tilbúinn.
  5. SkýrslaEftir ferð fyllir hann út akstursskýrslu í símanum.
  6. TímarVaktartíminn skiptist í dag-, kvöld- og næturvinnu.

Stika Floti, í vafra flotastjórnarStika, í síma bílstjórans

Fyrir bílstjórann

Bílstjórinn hefur allt sem hann þarf í símanum.

Boð og svör

Já eða Nei með einum smelli. „Samþykkja allar ferðir“ samþykkir allt sem bíður í einu.

Dagatal og framboð

Ferðirnar birtast í dagatali og bílstjórinn skráir hvenær hann er laus.

Akstursskýrsla

Sömu reitir og á pappírnum, flestir fylltir út fyrirfram úr ferðinni.

Mánuðurinn minn

Tími og akstur mánaðarins á einum stað.

Rata

Opnar leiðsögn að mætingarstað og áfangastöðum í Google Maps eða Apple Maps.

Íslenska og enska

Hver bílstjóri velur sitt tungumál.

Boð um ferð með Já- og Nei-hnöppum.
Boð um ferð
Dagatal bílstjóra, vikuyfirlit.
Dagatal
Akstursskýrsla í síma, fyllt út fyrirfram úr ferðinni.
Akstursskýrsla
Mánuðurinn minn: tími og akstur mánaðarins.
Mánuðurinn minn
Ferð með Rata-hnöppum sem opna leiðsögn að mætingarstað og áfangastöðum.
Rata

Tveimur tímum fyrir mætingu veistu hverjir eru klárir.

  1. 120
    mín. fyrir mætingu

    Bílstjórinn staðfestir „Ég er tilbúin(n)“ eða „Ég þarf aðstoð“.

  2. 90
    mín. fyrir mætingu

    Áminning ef ekkert svar hefur borist.

  3. 60
    mín. fyrir mætingu

    Ekkert svar? Flotastjórn fær viðvörun.

Fyrir flotastjórann

Flotastjórinn sér á einum lista allt sem þarf að bregðast við.

Þarf athygli

Ósvöruð boð, ferðir sem vantar bílstjóra, beiðnir um aðstoð og skýrslur sem vantar.

Ferðasíðan

Hverjum var boðið, hver samþykkti og hver breytti hverju og hvenær.

Tímar og akstur

Vaktartími allra bílstjóra, skiptur í dag-, kvöld- og næturvinnu. Sótt í Excel til að stemma af við launakerfið.

Ferðasíða í Stika Flota: bílstjórar ferðarinnar, staða þeirra og saga ferðarinnar.
Ferðasíðan
Tímar og akstur allra bílstjóra, skipt í dag-, kvöld- og næturvinnu.
Tímar og akstur
Reglur sem ekki er hægt að brjóta

Kerfið stöðvar tvíbókun áður en hún verður til.

  • Engin tvíbókun. Bílstjóri eða bíll kemst ekki á tvær ferðir sem skarast, líka þegar bílstjórinn keyrir fyrir fleiri en eitt fyrirtæki.

    Skarast við aðra ferð
  • Breyting kallar á nýtt svar. Ef tími, mætingarstaður eða bíll breytist þarf bílstjórinn að staðfesta aftur.

    Þarf nýtt svar
  • Saga á hverri ferð. Hver breytti hverju og hvenær.

    16. okt. 09:20 · Anna JónsdóttirBíður svars → Samþykkt

Einn aðgangur, mörg fyrirtæki

Bílstjóri sem keyrir fyrir fleiri en eitt fyrirtæki notar sama aðganginn. Hvert fyrirtæki sér aðeins sín gögn.

Gögn innan EES

Gögnin eru hýst á Írlandi. Bílstjóri sér aðeins eigin ferðir og gögn.

Hvernig þú byrjar

Þú byrjar á einni viku, samhliða Excel.

  1. Við stofnum fyrirtækið þitt í Stika og fyrsta flotastjórann.

  2. Flotastjórinn bætir við bílstjórunum sínum.

  3. Í eina viku keyrir Stika samhliða Excel. Svo ákveður þú.

Bílstjórar

Ertu bílstjóri? Skráðu þig inn í vafra símans.

Appið virkar strax í vafra símans og má setja á heimaskjáinn. Það er væntanlegt í App Store og Google Play.

Væntanlegt íApp Store Væntanlegt íGoogle Play
Skrá mig inn

Bókaðu 20 mínútna kynningu.

Við sýnum þér Stika og svörum spurningum.

Friðrik Sveinsson fridriksv@gmail.com